Hver hefur ekki horft á einhverja gamla hryllingsmynd þar sem að skrímsli (oftast risastór
eðla eða ógnarstór api) er að eyðileggja einhverja stóra borg, og hugsað "af hverju ætti HANN að fá alla skemmtunina"?
Jæja, þökk sé ActiVision færð ÞÚ nú tækifærið til að uppfylla þessa drauma, séu þeir að eyðileggja byggingar, drepa hermenn, rústa þyrlum, trampa á bílum eða stela konum.
En ef þú vilt halda lífi ættir þú að hlusta á nokkur ráð. Fyrst af öllu, fáðu nokkra vini til að spila með þér. Þú hefur miklu meiri möguleika á að lifa af ef þið eruð nokkur saman.
Passaðu þig bara þegar þú ert að lemja í kringum þig. Þú munt meiða vini þína ef þú berð þá.
Reyndu einnig að forðast árásir hermanna og þyrlna, þar sem þær geta skaðað þig! Svo éttu þá
alla! Já, éttu þá. Þú færð til baka smá af lífi með þeim hættu, en konur eru bestar. Einnig
ættiru að passa þig á hlutum sem eru faldir inní byggingum. Þú gætir fundið líf, en þú gætir líka lent á sprengiefni. Eitt sem þú verður að forðast er að detta niður skýjakljúfana. Ef þú sérð reyk neðst niðri, ættiru að stökkva af byggingunni áður en hún hrynur.
Það er ekkert fleira, í rauninni. Farðu þarna út og eyðileggðu bæði borgina og lyklaborðið!!br /